Fimmtudaginn 3. september skelltu félagar í Álklasanum sér í haustferð á Grundartanga. Mikið hefur verið í gangi á Grundartanga síðasta árið svo það var mikil eftirspurn hjá klasameðlimum að heimsækja þar Elkem, Norðurál og Al Álvinnslu en rúmlega fjörutíu manns frá 9 fyrirtækjum mættu í ferðina.
Vel var tekið á móti okkur á öllum stöðum. Ferðin hófst á rútuferð til Elkem þar sem Salome María Ólafsdóttir og Steinar Birgisson tóku á móti okkur, fóru yfir starfsemina áður en starfsemin sjálf var könnuð betur með skoðunarfer um kísilmálmverksmiðjuna.

Í Norðuráli, næsta áfangastað, tók Sigrún Helgadóttir á móti gestum ásamt fríðu föruneyti. Þar hlustuðum við á kynningu yfir góðum hádegisverð, en ýmislegt hefur gerst hjá Norðuráli síðastliðið ár sem vel hefur gengið að vinna úr. Það var ánægjulegt að heyra hvernig erfið verkefni geta þjappað fólki saman og skapað sterkari heild. Að kynningu liðinni voru gestir leiddir í skoðunarferð um álverið þar sem nýji steypuskálinn var meðal annars skoðaður.



Alur Álvinnsla var þriðja og síðasta álklasafyrirtækið sem við heimsóttum. Þar tóku Joe og Ásgrímur á móti okkur, kynntu sögu fyrirtækisins og starfsemina og leiddu hópinn í kringum Álvinnsluna þar sem við fengum að fara yfir endurvinnsluna, sjá ferlið og lokaafurðirnar.
Að fyrirtækjaheimsóknum loknum var keyrt lengra inn Hvalfjörðinn til Hernámssetursins þar sem Guðjón Sigmundsson tók á móti okkur, fræddi gesti um hernámið og færði okkur dýrindis villisveppasúpu. Þar var margt að skoða og gaman að koma.
Álklasinn þakkar öllum gestum og gestgjöfum kærlega fyrir daginn.