Nýsköpunarmót Álklasans 2026 var haldið í níunda skipti í Veröld - Húsi Vigdísar í Háskóla Íslands fimmtudaginn 28. febrúar síðastliðinn. Dagskráin var ekki af verri endandum, en Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi var með lykilerindið, þar sem hún leit um öxl á feril sinn í áliðnaðinum. Þegar litið hafði verið um öxl tóku við erindi um rannsóknir og nýsköpun í ál- og kísiliðnaði og var þannig horft fram á veginn.
Sigurður Magnús Garðarsson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, setti fundinn ásamt Ármanni Gylfasyni, kollega hans úr Háskólanum í Reykjavík. Þeim tókst vel að kynna Rannveigu Rist sem flutti lykilerindi viðburðarins. Hún fór um víðan völl og flutti bæði skemmtilegt og áhugavert erindi, enda frá miklu að segja eftir langan, viðburðaríkan og farsælan feril. Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir flutti síðan erindi sitt um rafgreiningu kísils, en það er möguleg leið til þess að framleiða léttmálminn á umhverfisvænari hátt en áður.
Að loknu kaffihlé sagði Kristján Leósson, CTO hjá DTE, frá nýrri kynslóð efnagreiningarbúnaðar fyrir bráðið álmelmi, en Kristján Leósson hefur stýrt rannsóknum og tækniþróun hjá DTE frá árinu 2018. Brynja Þorsteinsdóttir, meðstofnandi Alinsu, flutti síðan erindi um tölvusjónslausnir fyrir áliðnaðinn en Brynja nýtir reynslu sína úr störfum í álverum til þess að skapa ýmsar tölvusjónslausnir til að betrumbæti rekstur álvera. Að henni lokinni tók Rútur Ingi Karlsson vélahönnuður og verkefnastjóri hjá Eurometal við. Rútur sagði viðstöddum frá nýsköpunarverkefni Eurometal í Kanada, en Eurometal hannaði sérhæfðan tækjabúnað til þess að nýta glatvarma við forhitiun áls. Síðasta erindi dagsins kom svo frá Páli Árnasyni verkefnastjóra hjá Tæknisetri, en Páll sagði viðstöddum frá Reveal rannsóknarverkefninu sem snýr að því að nota ál sem orkugjafa til húshitunar um vetur, en ál hefur afar háan orkuþéttleika sem gerir það tilvalið til þess að geyma orku.

Að örerindum loknum voru hvatningarviðurkenningar veittar til nemenda sem unnið höfðu góð verkefni tengd ál- og kísiliðnaði:
Stefanie Veronelli, meistaranemi við Háskóla Íslands, hlaut viðurkenningu fyrir meistaraverkefnið sitt, "Desorption of CO2 from capture solution by membrane contactor" sem hún vann m.a. í samstarfi við Carbfix. Myrkvi M.W. Stefánsson, B.S. nemi við Háskóla Íslands, fékk viðurkenningu fyrir verkefnið sitt "Áhrif fjölda og staðsetninga súrálsmatara á rismínútur kera" sem unnið var í samtarfi við Alcoa Fjarðaál. Dan Giurgiu, doktorsnemi hjá Háskólanum í Reykjavík, fékk svo viðurkenningu fyrir doktorsverkefnið sitt "Framleiðsla kísilmálms með rafgreiningu.
Styrktaraðilar hvatningavriðurkenninga í ár eru Alcoa Fjarðaál, COWI, Norðurál, Rio Tinto á Íslandi, Samál, Samtök Iðnaðarins, Tæknisetur, Efla, Eurometal, Verkís og Héðinn.

Álklasinn þakkar öllum flytjendum, nemendum og gestum fyrir frábært Nýsköpunarmót!