Endurvinnsluátakinu „Gefum jólaljósum lengra líf – endurvinnum álið í sprittkertunum“ var ýtt úr
vör í gær þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra veitti viðtöku
veggspjaldi sem kynnir átakið.
.
Tilgangurinn með átakinu er að fá fjölskyldur til að skila álinu í sprittkertum til endurvinnslu og
efla vitund Íslendinga um mikilvægi þess að endurvinna það ál sem fellur til á heimilum og hjá
fyrirtækjum.


Ætla má að á ári hverju séu notuð um 3 milljónir sprittkerta hér á landi. Til að setja hlutina í
samhengi, þá dugar álið úr þremur sprittkertum í eina drykkjardós og einungis þarf þúsund
sprittkerti til að búa til reiðhjól.


Skila má sprittkertum á um 90 endurvinnslu- og móttökustöðvar um allt land.
Þá gefst fólki kostur á að setja kertin í grænu tunnurnar sem eru í boði hjá Gámaþjónustunni og
Íslenska gámafélaginu.


Að átakinu standa Endurvinnslan, Fura málmendurvinnsla, Gámaþjónustan, Íslenska
gámafélagið, Málmsteypan Hella, Plastiðjan Bjarg, Samál – Samtök álframleiðenda, Samtök
iðnaðarins og Sorpa.
Álið sem safnast verður pressað hjá Furu og endurunnið hér á landi, en nánar verður tilkynnt um
útfærslu þess þegar söfnunarátakinu lýkur í lok janúar.
Ráðist hefur verið í sambærileg átaksverkefni í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og á Írlandi og er þetta
tilraunaverkefni hér á landi. „Það finna allir að bylgjuhreyfinguna í samfélaginu, fólk vill leggja sitt
af mörkum til að draga úr sóun, flokka og skila til endurvinnslu,“ segir Pétur Blöndal
framkvæmdastjóri Samáls.


Ál hefur þá sérstöðu að það má nýta aftur og aftur án þess að það tapi upprunalegum
eiginleikum sínum. Einungis þarf um 5% af orkunni sem fór upphaflega í að framleiða álið til að
endurvinna það. Það þýðir að mikil verðmæti leysast úr læðingi við endurvinnslu álsins og færir
það stoðir undir rekstur endurvinnslufyrirtækja víða um Evrópu.


Þá dregur orkusparnaðurinn við endurvinnslu áls verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, enda
verður almennt mest losun frá orkuvinnslunni við framleiðslu áls í heiminum.
Átakið hefst miðvikudaginn 6. desember og stendur til 31. janúar næstkomandi.

Upplýsingar um átakið má finna á samal.is/is/endurvinnum-alid og á
facebook.com/endurvinnumalid/.