Á Nýsköpunarmótinu hlýddu yfir 100 manns á erindi um nýsköpun, rannsóknir og þróun í áliðnaði og voru framsögumenn frá atvinnulífinu og fræðasamfélaginu. Þar á meðal voru fyrirlesarar frá Laval-háskóla og REGAL rannsóknarmiðstöð áliðnaðarins í Kanada.

Það var Guðrún Sævarsdóttir, forseti tækni- og verkfræðideildar HR, sem flutti upphafserindi og sagði hún rannsókna- og þróunarstarfsemi leggja grunn að nýrri tækni, bættri orkunýtingu og rekstrarumbótum, auk þess að byggja upp sérfræðinga og veita tækifæri til þekkingarmiðlunar. Sigurður Magnús Garðarsson sviðsforseti Verk- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands sýndi hvernig háskólinn vinnur með atvinnulífinu að því að skila sem hæfustu starfskröftum út í samfélagið og Þorsteinn Ingi Sigfússon sagði frá hlutverki Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og spennandi verkefni sem þar er unnið af sprotafyrirtækinu DTE. Kristinn Harðarsson framkvæmdarstjóri fjárfestingar og framleiðsluþróunar hjá Alcoa, veitti innsýn inní það hvaða áhrif aukin sjálvirkni í framleiðslunni getur haft.

Þá voru fjölmargar örkynningar á nýsköpunar- og sprotaverkefnum, svo sem sjálfvirk ástandsgreining á deiglum, nýrri áltækni með málmrafskautum, umhverfisvænum toghlerum úr áli, mat á áhrifum forskautseiginleika á kerrekstur með „big data“ eða djúpnámsaðferðum, nýrri aðstöðu til frumgerðasmíða og hvort og hvenær nýting koltvíoxíðs frá iðnaði gæti orðið hagkvæm.

Undir lok mótsins voru fjórum háskólanemendum veitt hvatingarviðurkenningar fyrir þau verkefni sem þau vinna nú tengd áliðnaði.  Handhafar viðurkenningarinnar eru:  

Kevin Dillman frá Háskóla Íslands  með verkefnið „LCA greining á íslenskri álframleiðslu“, Leó Blær Haraldsson frá Háskólanum í Reykjavík með verkefnið „Hitaveita með varmaendurvinnslu frá Fjarðaál,  Fýsileikagreining“, Matthías Hjartarson frá Háskólanum í Reykjavík með verkefnið „Machine learning for detection of Cryolite electrolyte residue on dark surfaces, in an uncontrolled environment.“ og Regína Þórðardóttir frá Háskóla Íslands með verkefnið „Kortlagning á framleiðsluúrgangi sem fellur til innan áliðnaðar“

Myndir frá mótinu má sjá hér