Nýsköpunarmót Álklasans 2024 verður haldið í Hátíðarsal Háskóla Íslands fimmtudaginn 14. mars kl. 14-16. Á viðburðinum munu sérfræðingar innan álgeirans flytja áhugaverð erindi ásamt því að nemendur sem hafa unnið góð verkefni á sviði áls hljóta hvatningarviðurkenningar. 

Skráningu á viðburðinn má nálgast hér - Nýsköpunarmót Álklasans 2024

Við hvetjum alla áhugasama til þess að koma á viðburðinn!

Dagskrá:

  • Opnun viðburðar

Sigurður Magnús Garðarsson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
Ármann Gylfason, forseti verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík

  • Rafgreining Álklóríðs (Aluminium Chloride Electrolysis)

Espen Sandnes, prófessor við NTNU

  • Umhverfisvæn rafskaut, kragasalli og umhverfisvænn arftaki koltjörubiks

Sunna Ólafsdóttir Wallevik, stofnandi Álvits

  • Kaffihlé

  • Örerindi

Fernando Costa, forstjóri Alcoa Fjarðaáls: Stjórnborð Fjarðaáls.
Hans Atlason, stofnandi Visk: Tölvusjónarkerfi fyrir sjálfvirkar mælingar í álverum.
Bjarni Már Gylfason, leiðtogi samfélagsmála og samskipta hjá ÍSAL: Sjálfbærni í álframleiðslu í ljósi nýrrar löggjafar.
Jón Hjaltalín Magnússon, stofnandi og framkvæmdastjóri Arctus Aluminium: Carbon Free Aluminum Production with Vertical Inert Electrodes.
Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Umhverfis-, öryggis- og umbótasviðs Norðuráls: Markmið Norðuráls í losun á CO2.
Guðrún Sævarsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík: Að framleiða kísil með rafgreiningu.

  • Afhending nemendaviðurkenninga og kynning á nemendaverkefnum


Í lok dagskrár verður boðið upp á léttar veitingar.